Skip to content
Forsíða  »  Um Þumalínu

Þumalína var stofnuð 5. mars árið 1976 af Huldu Jensdóttur, fyrrverandi yfirljósmóður og forstöðukonu Fæðingarheimilis Reykjavíkur. Núverandi eigandi er Oddný Jónsdóttir. Verslunin hefur sérhæft sig í taubleium frá því ég tók við og umhverfisvænum vörum. Ég er alltaf að leita eftir einhverju nýju og spennandi til að færa viðskiptavininum sem byggir á því að skapa vellíðan og unað og þægindi.

Skilmálar:

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virkan dag. Hægt er að sækja pantanir til Þumalínu. Þá þarf að hafa samband við Þumalínu til að staðfesta að einhver sé við.

Sendingarkostnaður:
Verðskrá Íslandspósts hækkaði 1. maí 2009. Sendingarkostnaðurinn er nú greiddur af hálfu viðskiptavinarins þegar varan er afhent.

Skilaréttur:
Vörum má skila og fá endurgreitt ef þær eru í upprunalegu umbúðum og í upprunalegu ástandi innan tveggja vikna.