LANACare ullar innlegg
Efni
100% hrein ómeðhöndluð merinó ull. LANACare brjóstgjafainnleggin eru úr mjúkri og hreinni merinó ull. Innlegin gefa hlýju og lina verki þegar brjóstin eru aum. Aðeins tvö pör eiga að duga allt brjóstgjafatímabilið. LANACare innleggin hafa fengið bestu meðmæli ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndunum.
Staðreyndir um brjóstgjafainnleggin
Ullin dregur í sig mjólkina. Þar sem ullin andar haldast húðin og geirvörturnar þurrar, sem forðar vandamálum með húð og geirvörtur. Brjóstgjafainnleggið skal setja næst húðinni í brjóstahaldarann.
- Mini 9 sm - skálastærð A
- X-Small 12 cm - skálastærð A eða B
- Small 15 cm - skálastærð B eða C
- Medium 18 cm - skálastærð D eða stærra
- Large 22 cm - fyrir stærri skálastærð
- Oval (perulagað) 18 x 27 cm - fyrir stærri skálastærð. Þessi stærð hentar mjög vel konum sem eru mjög viðkvæmar fyrir kulda og eins ef um síendurteknar stíflur verða í handarkrikunum.
Umhirða
Þegar innlegin eru vot (eða minnst daglega) skal láta þau þorna yfir lágum hita, t.d. á ylvolgum ofni eða ofan á þurrkara sem er í gangi á meðan þú notar hitt innleggjaparið. Mikilvægt er að nota þurran hita því að ull getur dregið í sig allt að 40% af eigin þyngd án þess að hún virðist vot við snertingu. Náttúrlegt lanolín í ullinni heldur henni hreinni, vegna þess að þegar ullin dregur í sig raka, breytist eitthvað af lanolíninu í lanolínsápu, sem virkar sótthreinsandi.
| SKU | Á lager | Skilaboð |
|---|---|---|
| Mini | 11 | |
| XSmall | 6 | |
| Small | 0 | |
| Medium | 3 | |
| Large | 6 | |
| Oval | 3 |
